zídnavz

17.6.03

Well, well !! Já ég veit að sumir mega sko skammast sín fyrir það að vera latir við að blogga. Það er ótrúlegt hvað maður þarf stundum frí frá tölvunni eins og öllu öðru. Eftir blessaðan skólan hef ég ekki mikinn tíma í að glugga í tölvuna hvorki í vinnunni né heima.

Annars átti ég afmæli á laugardaginn, orðin 23ja ára skvísa.........til hamingju ég!! Ég fór til eyja og hélt upp á það með pabba því hann varð 53 kallinn og Stebbi frændi (tvíburabróðir hans pabba) að sjálfsögðu líka. Dagmar dóttir hans var að gifta sig og við lentum í heljarinnar veislu, Hreimur í LogS og Hálft í hvoru mætti á svæðið auk mjög skemmtilegra heimatilbúinna skemmtiatriða. Þvílík stemmning, svo er það bara goslokaafmælið næst og svo jú..................Þjóðhátíð............vííííííííí!


Það er æði í vinnunni en bilað að gera þannig að góða veðrið hefur ekki verið að sýna sig fyrir mig því ég er fram á kvöld að vinna.

Reyndar........fór í útilegu um þar síðustu helgi í Húsafell eða réttara sagt Reyðarfellsskóg það var gaman fyrir utan smá klúður í tjöldunarstörfunum (fengum tjaldvagninn hjá tengdó lánaðan), það var sko ekkert sem ekki þurfti að gera tvisvar við það að reisa tjaldvagninn, við "hjónin" ætlum ekki að leggja þetta fyrir okkur í framtíðinni, allavegana ekki í nánustu!!!

Vonandi hefur einhver haft þolinmæði og kíkt á síðuna öðru hvoru.........reyni að bæta mig!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home